Eins og allir sem horfðu á Evrusýn í Ríkissjónvarpinu í maí urðu vitni að, þá eru Frakkar svalir á svo allt öðrum skala en aðrar þjóðir. Sebastien Tellier tók lagið Divine og kom inn á sviðið í golfbíl. Spurning: HVERSU SVALT? Svar: OF SVALT. Jæja, nóg um það. Sebastien minnir mig í mörgu á þann ofursvala mann Serge Gainsbourg, en þau eru nú þónokkur börnin sem hafa komið undir við heillandi tónana í laginu Je T'aime:
Þetta er by far sexíaðasta (kynþokkafyllsta fyrir íslenskufasistana) lag sem gefið hefur verið út (Güntherinn kemst samt auðvitað alveg semí nálægt því sko). Serge kom oft fram í annarlegu ástandi, en tókst samt að vera ofursvalur og sexí í öll þau skipti. Hinsvegar er eftirfarandi klippa þar sem hann hittir Whitney Houston bara ooooof fyndin. Enjoy!
Ég vaknaði með lag á heilanum í morgun. Slíkt gerist mjög oft og væri eflaust ekki í frásögur færandi, nema að þetta tiltekna lag var barnagælan um hana Stínu sem fór og keypti klæði á dúkkuna sína. Ef ég man rétt, þá hljóma síðustu erindin svona:
Hann brosandi fór og klippti klæðið
"Hvað kostar það" spurði Stína.
"Einn koss" hann svaraði "kostar klæðið
í kjól á brúðuna þína.
Í búðinni glumdi við gleðihlátur
er glaðlega svaraði Stína
"Hún mamma kemur í bæinn bráðum
og borgar skuldina mína
Ég fór að pæla mikið í þessum tveimur erindum, og pældi í þeim í mestallan dag. Er búðarstarfsmaðurinn eða -eigandinn ekki að notfæra sér stöðu sína? Hann býr yfir völdunum yfir búðinni og klæðunum sem stúlkan vill fá, ásamt því að vera töluvert eldri. Er maðurinn hugsanlega barnaperri, sem tælir ungar stúlkur gegn því að gefa þeim falleg efni í brúðuföt? Er hann mögulega dæmdur barnaníðingur? Og hvað er málið með viðbrögð fólksins í búðinni við þessu kynferðislega áreiti? Þau hlæja að þessu, í stað þess að gera alvarlegar athugasemdir og jafnvel hringja í kynferðisafbrotadeild Ríkislögreglustjóra. Það þykir mér nú óábyrgt.
Að lokum finnst mér undarlegt hvernig stúlkan, hún Stína svarar. Er móðir hennar vön að kyssa undarlega karlmenn sem hún þekkir ekki neitt gegn greiðslu? Er Stína að selja móður sína? Er Stína hugsanlega einn fyrsti pimpinn á Íslandi?
Já, barnagælur geta haft djúpstæðari merkingar en margir telja.
Jahá! Þá er maður bara búinn með 4. árið í læknisfræði. Árið sem aldrei ætlaði að klárast og var endalaus vinna, vökunætur og „seint í rassinn gripið lestur“. Maður á erfitt með að trúa því að þetta sé búið, ekki fleiri ókeypis dagálar og stöff frá mér, ó nei! :) Nú er ég kominn í launaða vinnu við að skrifa dagála og fer sú vinna fram á Kleppi. Sumarið byrjar vel og er ég kominn með skrifstofu, tölvu, tvo síma og prentara, þannig það ætti ekki að væsa um mann hérna. Deildin sem ég vinn á er endurhæfingardeild og því verður nokkuð um nýja sjúklinga í sumar sem er mjög spennandi. Hinsvegar er ekki spennandi að ég verð bara í dagvinnu en á móti kemur að þá er ég alltaf laus á kvöldin og um helgar og geim í að hitta ÞIG.
Mamma og pabbi eru komin heim, það var gaman að fá þau aftur en Pétur Freyr kemur ekki alveg strax. Hann fór beint til Svíþjóðar að hitta landsliðsþjálfarann. Það er óneitanlega meira fjör og læti upp á Brúnastöðum 63 þessa dagana.
Ég stefni á að vera duglegur að ferðast um landið í sumar, þar sem ég fæ ekki sumarfrí. Á planinu er m.a. ferð í Landmannalaugar að hitta E-Lo og Snabbann og ferð á Leirubakka til Hrafnhildar. Þeir sem vilja koma með eru meira en velkomnir!
Kleppsstöðunni fylgir svo mánaðarfrí næsta vor og þá var ég að hugsa um að koma mér eitthvað út í heim, t.d. til S-Ameríku á Kjötkveðjuhátíðina eða eitthvað álíka spennandi. Auglýsi hér með eftir ferðafélögum ;)
Annars hef ég ákveðið (einu sinni enn) að rífa þetta blogg upp og reyna að gera það svoldið sneddí. Á næstu dögum fara t.d. hlekkirnir hér fyrir ofan að virka betur og svona. Stay tuned!
Mér finnst Stöð2 ekki vera að nýta sér veðurspána nógu mikið til að ná til markhópsins. Ég held að það væri til dæmis sniðugt að sleppa alveg krakkaveðrinu í seinni fréttum klukkan 22.00 og taka þess í stað upp Pabbaveðrið, þar sem veðurspánni yrðu gerð grafísk skil.
Ég held að þetta myndi auka áhorf á veðurfréttir Stöðvar2 um svona 100-150% strax á fyrstu dögunum. Svo gætu þeir jafnvel haft næturveðurfréttir á læstri stöð á Digital Ísland. Möguleikarnir eru endalausir!
Þetta er án gríns eitt það fyndnasta sem ég hef séð í prófatíð. Ekki nóg með að þetta sé líklega það gagnslausasta sem fundið hefur verið upp, þá er þetta líka ónothæft. Nema að ætlunin sé að hlæja mikið, þá er þetta fínt, eins og sést í þættinum með Ellen þar sem hún prófar þetta. Kíkið á það hér! Gvöööööð, ég hef sjaldan hlegið jafn mikið!
Fyrst vil ég taka það fram að ég er vissulega á móti bensínverðinu og finnst réttlætanlegt að mótmæla ósanngjörnum hvíldartíma og fleira.
Hinsvegar virðist fólk enn og aftur misskilja „lýðræðislegan rétt sinn til mótmæla“. Mín skoðun á mótmælum er sú að þau eigi að fara friðsamlega fram. Fólk sem er ekki með frauð fyrir heila hlýtur að gera sér grein fyrir að þú græðir ekkert á að fara fram með offorsi og það veikir bara málstaðinn. Því miður virðist sem talsmaður vörubílstjóra sé ekki í hópi frauðlausra.
Lýðræðislegur réttur fólks er ekki sá að hringjast á og skipuleggja slagsmál við lögregluna eða trufla embættisverk forseta Íslands. Því miður virðist það gerast hér á Íslandi eins og annars staðar, t.d. í Kenýa, að fólk notar tækifærið þegar aðrir brjóta af sér til að sýna mannvonsku sína í verki. Auðvitað má segja að lögregla hafi gengið harkalega fram og allt það en miðað við aðgerðir og rökstuðning mótmælenda (t.d. „þeir spreyjuðu næstum á konu með barn“) finnst mér þær vel réttlætanlegar. Ég held aftur á móti að lögreglan hafi ekki verið nógu þjálfuð eða skipulögð í þessum aðgerðum.
Þessi skríll sem þarna var samankominn átti ekkert skylt við þau markmið sem vörubílstjórar vilja ná fram. Eina sem þetta „lýðræðissinnaða“ unga fólk var að hugsa um var að sýna dónaskap, brjóta lög og klappa svo fyrir þeim sem var mesta fíflið. Það er frekar veikur punktur að segja að lögreglan hafi verið búin að ákveða hvernig þeir myndu tækla þetta, þegar að mótmælendur mættu með egg og fleira til að kasta.
Til hamingju, skríll, ykkur tókst að eyðileggja fyrir þeim annars nokkuð góðu málefnum sem bílstjórarnir stóðu fyrir!
Update Hér má til dæmis sjá hvað ég á við. Unglingspiltar og aðrir vitleysingar mættir til þess að nýta réttinn sinn til að klappa þegar lögreglumaður er sleginn. Aumingja fólkið sem hagar sér svona, það er bara greinilegt að sumum er ekki gefið meira vit í vöggugjöf.